Um okkur
Frostwear var stofnað árið 2012 í Reykjavík með það markmið að hanna og þróa fatnað sem hentar vel fyrir líkamsrækt og útivist á Íslandi.
VERMIR er fyrsta varan í vörulínu fyrirtækisins og eru fleiri vörur væntanlegar til að hjálpa þér að njóta útiverunnar.
Frostwear ehf
Hrísmóum, 210 garðabæ
fsw@fsw.is
VSK nr. 47190
Kt. 470812-0360
SKILMÁLAR
VÖRUVERÐ & SENDINGAR
Óski viðskiptavinir að fá að sækja vöruna skal hafa samband við okkur: fsw@fsw.is
Öll vöruverð eru birt með fyrirvara um prentvillur og áskilum við okkur rétt til að hætta við viðskipti hafi rangt verð verið gefið upp. Öll verð eru gefin upp með virðisaukaskatt.
Enginn kostnaður er við heimsendingu á pöntunum yfir 7.500kr annars er sendingagjald 400kr. Pantanir eru sendar með Íslandspósti og gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. Afhendingatími er 3-5 virkir dagar.
Viðskiptavinir ber sjálfur ábyrgð á að gefa upp rétt póstfang eða að vera með rétt merkta póstkassa eða póstlúgur. Ef vara er ekki til á lager munum við hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma eða endurgreiða vöruna.
SKIL & ENDURGREIÐSLUR
Skipta- og skilafrestur fatnaðar er 14 dagar frá afhendingu og er afgreiddur í beinum samskiptum við viðskiptavin. Við endurgreiðum vörur ekki nema um galla sé að ræða, en hvert tilvik er skoðað fyrir sig.
ÞJÓNUSTA & GÆÐI
Okkur er það mikilvægast að viðskiptavinir okkar séu ánægðir með þjónustu og vöru, og því reynum við eftir fremsta megni að tryggja 100% gæði og frábæra þjónustu. Við munum gera það með því að tryggja hraða svörun, skilvirka heimsendingu og tileinka okkur lausnamiðaða hugsun. Við viljum benda á að við svörum öllum fyrirspurnum og ef það er eitthvað sem þú ert óánægð/ur með viljum við hvetja þig til að hafa samband við okkur hér á síðunni eða í tölvupóst fsw@fsw.is
GREIÐSLULEIÐIR
Hægt er að greiða með öllum helstu Debit- og Kreditkortum. Kortafærslur fara í gegnum örugga greiðslusíðu.
PERSÓNUVERND
Lög og varnarþing
Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjaness.